Leita í fréttum mbl.is

Hvernig Ísland mun verjast kreppu

Frá 1995 hafa verið uppgangstímar í landinu. Það eru 13 ár. Á tímablinu 1985 - 1994 voru örfá sæmileg ár, nokkur ár sem ekki gáfu neitt og svo voru ár sem leiðin lá niður á við. Eftirtekjan af 10 árum var engin þegar upp var staðið.

Það var við þær aðstæður sem samfélagið breyttist upp úr 1990. Það sem telst markvert er að enginn flokkur vill fara til ástands eins og það var fyrir þann tíma.

Nú spyr fólk hvort íslenskt þjóðfélag sé búið undir kreppu og vísar til þess  hversu margt fjármálafólk er alið upp í eintómum uppgangi. Svarið er að landið er vel varið kreppu. Það hefur miklar innistæður í lífeyriskerfi sem er uppsöfnunarkerfi, ólíkt löndunum í kringum okkur. Það hefur góða afkomu ríkissjóðs og stærstu sveitarfélögin hafa lagað afkomu sína mikið á síðustu árum.

Fjármálafólkið er ekki föst stærð. Þau sem voru áberandi fyrir 5 árum voru það ekki fimm árum fyrr, og eru að detta út af sjónarsviðinu núna. Það hvílir ekki á herðum þeirra sem voru áberandi í fyrra að laga ástand næsta árs, heldur verða það aðrir.

Það sem er öruggt, er að þetta þýðir miklar breytingar á starfsumhverfi bankanna. Spurningin er núna hvort þeir flytja meiri hluta starfsemi sinnar úr landi, eða alfarið. 


mbl.is Persónuafsláttur hækkaður meira en gert var ráð fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sæll Sveinn!

Mjög skynsamlega mælt af þér. Ég veit nú ekki hvort þú ert sammála mér, en ég er þeirrar skoðunar að kannski sé bara ágætt að smá kólnun eigi sér stað og slík kólnun þarf nú ekkert að verða kreppa.

 Síðan væri mjög skynsamlegt að fara af stað með framkvæmdir í Helguvík í sumar og haust og láta þær ná hámarki á næsta ári. Að Helguvík lokinni má síðan byrja á Bakka. Ég held nú að flestir séu búnir að átta sig á því að þótt bankabólan hafi ekki verið nein refarækt þá er nokkuð langt í að fjármálastarfsemi verði einn af undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar.

Kveðja,

Guðbjörn Guiðbjörnsson  - Suðurnesjamaður

Guðbjörn Guðbjörnsson, 17.2.2008 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sveinn Ólafsson
Sveinn Ólafsson
Höfundur bloggar um lífið og tilveruna.

RSS-straumar

BBC News

RSS feed from the BBC news website

BBC News

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband