29.10.2007 | 17:26
If I can make it there, I'll make it everywhere
Spár um hverjir muni kljást í forsetakjörinu í Bandaríkjunum að ári liðnu markast af tvennu.
Á demókratavæng virðist Clinton vera óstöðvandi. Hún kemur rétt fyrir í ræðustól, safnar meira fé en nokkur annar, hefur þrautreynda kosningavél og að því er virðist öll spil á hendi. Þá er einungis eftir spurningin, líkar kjósendum við hana?
Þá gerist það að fólk fer ósjálfrátt að leita að andstæðingi Clinton repúblikanamegin og staðnæmast við Guiliani. Mér virðist að fólk máti saman andstæðinga frá New York. Ég er ekki alveg viss um að þjóðin sé svo hrifin af því sem gerist í New York. Til dæmis er Guiliani mjög nálægt miðju, ólíkt síðustu forsetum repúblikana, Reagan og Bush-feðgum.
Ég fylgist náttúrulega aðeins með úr fjarlægð, en það gera líka flestir kjósendur að ári liðnu. Við fáum þetta allt saman gegnum sjónvarp og aðra miðla.
Eins og mál standa, virðist þó Clinton eiga meiri möguleika að fá tilnefningu sín megin en Guiliani á sínum væng. Það er ekki víst að demókratar græði á því.
Spá því að Clinton og Giuliani muni kljást í forsetakjörinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:27 | Facebook
RSS-straumar
Eldri færslur
Tenglar
Umræða
- Betri Reykjavík Umræðu- og ákvörðunarvettvangur um málefni Reykjavíkur
- Betra Ísland Umræðuvettvangur fyrir mál á döfinni
Vinir og kunningjar, hinir og þessir
Tenglar í allar áttir
- Tómas Ponzi Tómas Ponzi, teikniblogg
- UNO UNO, Hörður Svavarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Obama er amk búinn að vera; http://www.americablog.com/2007/10/obama-supporter-blasts-gays-at-gospel.html
Elías Halldór Ágústsson, 29.10.2007 kl. 21:03
Obama er amk búinn að vera; http://www.americablog.com/2007/10/obama-supporter-blasts-gays-at-gospel.html
Elías Halldór Ágústsson, 29.10.2007 kl. 21:04
Bindisráðgjafi??!!?? Ja hérna!
Kristján Magnús Arason, 31.10.2007 kl. 13:19
Svo er Clinton búin að ráða Sandy Berger, sem ku víst vera bara gangandi skjalasafn.
Kristján Magnús Arason, 31.10.2007 kl. 13:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.