Leita í fréttum mbl.is

Hvað er þetta með loðteningana?

Ég hef tekið eftir ýmsu sameiginlegu með liðinu sem straujar fram hjá manni og skellir sér á annað hundraðið á Hringbrautinni.

Þeir hafa aðeins efni á að láta loga í einu framljósi, hitt er greinilega ofrausn. Skoðunin er löngu útrunnin. Ef það er ekki miði frá síðasta ári, þá eru liðnir svona níu mánuðir síðan átti að skoða.

Þeir hafa náttúrulega ekki efni á nýrri peru eða senda bílinn í skoðun, peningurinn fór í radarvara. Sem reynist svo ekki nógu vel.

Og hvað er með þessa loðteninga? Er þetta alþjóðlegt pungtákn?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Landlægt stjórnleysi hugtekinna sambræðra okkar elsku vinur. Hvað er loðteiningur? Er það þessi vinsamlega ábending með löngutöng sem sést svo oft í umferðinni?

Kveðja,

Greppur Torfason (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 14:02

2 Smámynd: Sveinn Ólafsson

Sæll Kristinn.

Þessir teningar sem hanga yfirleitt niður úr baksýnisspeglinum, oftar en ekki loðnir, og fá að dingla þar fram og til baka. Mér svo sem ekkert meinilla við þá, saklaust skraut. Þau sem hafa horft á Red Dwarf þekkja það þegar aðal-lúðinn þar getur óskað sér hvers sem hann vill, fær sér sportbíl og segir hugsi: Það vantar eitthvað hér. Hann smellir fingrum og loðnir teningar birtast. Ég verð að hætta að vera svona loðinn í tali og reyna fremur að vera loðinn um lófana, það er víst það sem gildir.

kveðja, 

Sveinn Ólafsson, 26.9.2007 kl. 18:41

3 Smámynd: Baldvin Z

Þetta var vonandi ekki skot á mig, sem fór ekki með rauðu örina í skoðun fyrr en í gær. Átti nefnilega að fara með'ann í júní. Ég hef nú samt ekki komið þeim rauða uppí annað hundraðið á Hringbrautinni, enda tæki hann slíkt ekki í mál!

 PS: ég fékk bara eina athugasemd í skoðuninni, það vantar peru í númeraljós á þeim rauða

Baldvin Z, 27.9.2007 kl. 01:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sveinn Ólafsson
Sveinn Ólafsson
Höfundur bloggar um lífið og tilveruna.

RSS-straumar

BBC News

RSS feed from the BBC news website

BBC News

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband