Leita í fréttum mbl.is

101-veikin

Það hefur ekki vantað að fólk sýni miðbæ Reykjavíkur umhyggju. Það er spurning hvort sú umhyggja hafi alltaf skilað fólki betri bæ.

Það er rétt sem sagt er að helmingur af öllum störfum á höfuðborgarsvæðinu er vestan Kringlumýrarbrautar, meðan einn fjórði íbúa svæðisins býr á sama svæði. Lausnin sem hefur verið fundin hingað til, að byggja fleiri íbúðir á svæðinu, hefur ekki breytt þessari stöðu. Spurningin er eins og alltaf, hver er vandinn?

Rætt er um að byggja íbúðir fyrir allt að 20.000 manns á svæðum við höfnina og Hlemm. Á báðum stöðum verður einnig mikil uppbygging á atvinnuhúsnæði, enda er svæðið eftirsótt jafnt fyrir íbúðir sem starfsemi. Þá má óska þess að íbúar þarna vinni á svæðinu en það er eitthvað sem er alls ekki á hendi skipulagsyfirvalda og miðað við reynslu í Evrópu er það ekki raunin.

Þau svæði þar sem á að þétta byggð eru nú þegar þéttust fyrir. Fimmfalt fleiri búa á hverjum hektara í 101 en í dæmigerðu úthverfi. Fólk sem þannig býr hefur séð afskaplega mikið eftir grænum blettum og leiksvæðum sem hafa myndast þar sem lóð hefur verið óbyggð, Mikil ásókn í hefur verið í óbyggðu lóðirnar hvar sem slíkir blettir eru í gamla austurbænum og vesturbænum.

Þéttleikanum fylgir miklu meira álag fyrir íbúa miðað við að búa í úthverfi og spurning er hvort meta megi lífsgæði þannig að þau innifeli tryggingu fyrir leiksvæði fyrir börn, minni umferð en nú er, minni ágang vegna útigangsfólks, minni ágang vegna athafnafólks með miklar hugmyndir um næsta umhverfi þeirra sem þarna búa? Þarf að gæta að lífi þessa fólks sem þarna býr? Ef bætast við tugir þúsunda í vesturbæ Reykjavíkur auk stóraukinnar atvinnustarfsemi við höfnina, þá fer sú umferð sem myndast um tvær götur, Hringbraut og Mýrargötu. Segi hver sem vill og horfi framan í íbúa þar, að það sé í lagi.

Reynslan af borgum þar sem íbúafjöldi stendur í stað sýnir að hófleg og lítil atriði eins og aukin gróðursetning trjáa, fleiri græn svæði og varleg uppbygging hefur aukið lífsgæði og borgargæði. Við sem búum á þessari eyju stöndum núna frammi fyrir þeirri staðreynd að næstu árin mun fjölgun ekki verða teljandi og alls ekki í líkingu við það sem búist var við fyrir fjórum árum. Dæmið hefur hreinlega snúist alveg við og forsendur gerólíkar frá því sem áður var.

Þegar þéttingin þýðir að störfunum fjölgar hraðar en íbúunum er rétt að skoða aðrar lausnir. Reykjavíkurborg er einn stærsti vinnuveitandinn á svæðinu. Er fljótlegra að borgaryfirvöld flytji meira af starfsemi sinni austur fyrir Kringlumýrarbraut  en að byggja hátimbraðar skipulagshugmyndir ofan á þær íbúðir sem nú standa tómar við höfnina?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sveinn Ólafsson
Sveinn Ólafsson
Höfundur bloggar um lífið og tilveruna.

RSS-straumar

BBC News

RSS feed from the BBC news website

BBC News

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband