Leita í fréttum mbl.is

Sumartími

Sumartími er kominn í Evrópu og Bandaríkjunum, þó að víða sé vorið komið skammt á veg. Nú munar einum tíma á okkur og Bretlandi og tveimur tímum á okkur og Mið-Evrópu. Fólk spyr af hverju er ekki komið á sumartíma á Íslandi og svarið er einfalt, það er sumartími árið um kring hjá okkur.

Yfirleitt er sumartími þannig við að klukku sé flýtt um einn tíma á sumrin, þannig að sólin komi upp um sjöleytið í stað þess að koma upp um sexleytið. Þá sest hún ekki fyrr en um sjöleytið í lok mars og um níuleytið í London í lok júní. Klukka hér er þannig árið um kring og kemur sólin upp klukkutíma á eftir raunverulegum tíma á Austurlandi, um klukkutíma og korteri á Akureyri og einum og hálfum tíma á eftir í Reykjavík. Ef við myndum flýta klukkunni í lok mars eins og Evrópuþjóðir værum við á því sem kallað er tvöfaldur sumartími. Sólin kæmi þá upp um áttaleytið í lok mars.

Nú berast fréttir frá Bretlandi sem segja frá baráttu fyrir slíku kerfi þar, svokölluð 10:10-hreyfing.

Einhverjir vinnustaðir auglýsa opnun klukkutíma fyrr á sumrin. Mér fannst merkilegt að heyra umræðu um að framhaldsskólanemar ættu erfitt með að koma sér á lappir í mesta skammdeginu. Þetta er einmitt það sem við ræddum um í MH fyrir 30 árum síðan og vildum að kennsla byrjaði klukkutíma seinna. Þá lærðist mér einföld íslensk rökfræði og ég á ekki við kennslubók Guðmundar Arnlaugssonar sem Eygló Guðmundsdóttir kenndi okkur. Nei, þá fengum við að vita að kennarar hefðu rætt þetta og vildu þetta ekki. Þar með var endir umræðu. Þó við vildum vita hvort kennarar gætu til dæmis unnið við annað en sjálfa kennsluna fyrsta klukkutímann var umræðan tæmd, búin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tími er bara tími, annað hvort réttur eða rangur. Auðvitað á tíminn að vera réttur og það er hluti af öllum fáránleika að venja Íslendinga við að vera alltaf á vitlausum tíma. Menn geta svo ákveðið að legja af stað kl. sjö eða átta, en það er allt annað mál. 

Hrólfur Þ Hraundal, 29.3.2010 kl. 07:48

2 identicon

Gleðilegt sumar

Gullvagninn (IP-tala skráð) 29.3.2010 kl. 08:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sveinn Ólafsson
Sveinn Ólafsson
Höfundur bloggar um lífið og tilveruna.

RSS-straumar

BBC News

RSS feed from the BBC news website

BBC News

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband