Leita í fréttum mbl.is

Hvernig á ekki að einkavæða

Fyrir 2 árum var Síminn seldur á 66,7 milljarða. Það kom vel út fyrir ríkissjóð sem var með afbragðs afkomu það árið.

Af því að þetta var opinbert fyrirtæki, það er að segja í eigu almennings, var ákveðið að láta andvirðið renna til þjóðþrifamála. Um þetta voru sett lög nr. 133/2005.

Til að þjóðin missti ekki alveg af fyrirtækinu var líka ákveðið að setja 30% hlutafjár þess á almennan markað. Þetta mátti gera hvenær sem er á tímabilinu til ársloka 2007.

Í frétt forsætisráðuneytis var meðal annars sagt frá að 15 milljörðum króna yrði varið á árunum 2007 - 2010 til framkvæmda í vegamálum, m.a. til byggingar Sundabrautar, fyrst yfir í Grafarvog og síðan, með tilstilli einkaframkvæmdar, um Álfsnes upp á Kjalarnes.

  • Fé til uppbyggingar Sundabrautar bíður. Fólk hefur heyrt nógu margar skýringar á því hvers vegna hún er ekki komin en það er ljóst að það verður ekki fyrir árslok 2010. Sökinni má varpa víða og hefur verið reynt að gera það. Niðurstaðan er sú sama fyrir íbúa Grafarvogs, Mosfellsbæjar og þá sem fara vestur og norður á land.
  • 30% hlutafjár Símans hf. verður ekki skráð á almennan hlutabréfamarkað fyrir árslok 2007.

Talsmenn einkavæðingar ættu að athuga að fólk verður að læra að treysta því að rétt sé með hana farið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sveinn Ólafsson
Sveinn Ólafsson
Höfundur bloggar um lífið og tilveruna.

RSS-straumar

BBC News

RSS feed from the BBC news website

BBC News

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband